Námsform í boði

Staðnám

Staðnám fer fram í fullbúnum kennslu- og tölvustofum hjá NTV Promennt. Nemendur mæta í tíma samkvæmt stundaskrá og fá beina leiðsögn frá kennara í kennslustundum.

Ef námslínan er einnig í boði í fjarnámi hafa staðnemar aðgang að öllu rafræna námsefninu og upptökum úr kennslu. Það auðveldar nemendum að fylgjast með ef þeir missa úr tíma eða vilja rifja upp efni.

Fjarnám

Fjarnám hentar þeim sem vilja sveigjanleika en jafnframt fasta námsáætlun og reglulega eftirfylgni.

Námið hefur skilgreint upphaf og lok, ásamt skiladögum verkefna og prófa samkvæmt námsáætlun. Nemendur vinna námið á sínum tíma innan vikunnar, en fylgja sama námshraða og í staðarnámi.

Nemendur eru hluti af hópi og hafa samskipti við kennara og samnemendur í gegnum nemendakerfi skólans. Allt kennsluefni er aðgengilegt á rafrænu formi og birtist samkvæmt námsáætlun.

Ef kennsla er streymd eða fundir haldnir í rauntíma eru upptökur aðgengilegar síðar fyrir þá sem komast ekki í beina þátttöku.

Fjarnám í frelsi

Fjarnám í frelsi er sveigjanlegt námsform fyrir þá sem vilja læra á eigin hraða.

Nemandi skráir sig, gengur frá greiðslu og getur hafið námið strax. Aðgangur að náminu er opinn í allt að 6 mánuði, en nemendur geta lokið því hraðar ef þeir kjósa.

Ólíkt hefðbundnu fjarnámi fylgir nemandi ekki hópi heldur vinnur sjálfstætt. Nemendur ráða sjálfir hvenær þeir vinna verkefni, skila verkefnum og taka próf.

Þetta námsform hentar sérstaklega vel þeim sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega eftirfylgni.

Við lok náms fá nemendur sama útskriftarskírteini (diplóma) og í hefðbundnu námi, að því gefnu að öllum verkefnum og prófum sé lokið.

Þjónustumarkmið skólans er að verkefni fái endurgjöf innan 7 virkra daga. Yfirferð stærri verkefna og prófa getur tekið lengri tíma en þá eru nemendur upplýstir sérstaklega. Rauðir dagar teljast ekki með, auk þess sem yfirferð liggur niðri yfir jól, páska og miðsumar (1. júlí–5. ágúst).

Sjálfsnám

Í sjálfsnámi lærir þú á eigin vegum án aðstoðar kennara eða leiðbeinenda.

Nemandi skráir sig, greiðir fyrir námið og fær strax aðgang að rafrænu kennsluefni, þar á meðal kennslumyndböndum og öðru námsefni á netinu. Aðgangur að náminu er opinn í 6 mánuði og ræður nemandi sjálfur hraða og yfirferð námsins.

Sjálfsnám hentar þeim sem vilja hámarks sveigjanleika og treysta sér til að vinna efnið sjálfstætt án reglulegrar eftirfylgni.

Ekki er veitt viðurkenning eða útskriftarskírteini við lok sjálfsnáms.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði