Gemini og NotebookLM

9.900 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Google Gemini er öflug gervigreind frá Google sem nýtist til að skrifa texta, þróa hugmyndir, greina gögn, forrita og skapa efni á skilvirkan hátt. Á námskeiðunum lærirðu hvernig prompts virka og hvernig má fá nákvæmari og betri niðurstöður í raunverulegum verkefnum. Einnig kynnum við Notebook LM, snjallt vinnuumhverfi sem byggir á þínum eigin gögnum og hjálpar þér að draga saman efni, finna lykilatriði, bera saman heimildir og vinna hraðar með upplýsingar. Þannig færðu verkfæri sem nýtast beint í vinnu, námi og daglegum verkefnum.
Námskeiðið hentar sérstaklega vel fyrir alla sem vilja skrifa hraðar, þróa hugmyndir, greina upplýsingar og nýta gervigreind í vinnu, námi og daglegum verkefnum með Gemini. Einnig nýtist það vel námsfólki, kennurum og öllum sem vinna mikið með heimildir, glósur og úrvinnslu upplýsinga með NotebookLM.
Gemini
  1. Kynning (01:49)
  2. Hvernig nálgast maður Gemini? (01:29)
  3. Viðmótið í Gemini (03:15)
  4. Gemini vs ChatGPT – Hver er munurinn? (03:07)
  5. Deep research (01:50)
  6. Canvas (02:55)
  7. Myndir með Imagen (01:49)
  8. Myndband með Veo3 (02:43)
NotebookLM
  1. Hvað gerir NotebookLM? (04:20)
  2. Fyrstu skrefin (06:21)
  3. Umbreytandi áhrif gervigreindar á skapandi vinnuferla (04:23)
  4. Gerðu Podcast (03:22)
  5. Hugarkort og skýrslur (03:11)
  6. Podcast frá vefsíðu (01:41)
  7. í Símann (01:46)

Gemini og NotebookLM – Sjálfsnám

Verð: 9.900 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði