CoPilot fyrirtækjanámskeið

í samstarfi við Microsoft

Um námið

Yfirskrift námskeiðsins er: „Umbreytum hugmyndum í aðgerðir með Copilot“ og er hugsað fyrir alla innan fyrirtækis eða skipuheildar sem hafa áhuga að læra undirstöður í Microsoft 365 Copilot til að bæta og auðvelda þeirra daglegu vinnu.

Eitt vinsælasta Copilot námskeið á fyrirtækjamarkaði í dag. Mörg hundruð starfsmenn viðskiptavina okkar hafa setið námskeiðið og gefið því sína bestu einkunn. Hagnýtt og hnitmiðað 2ja klst. námskeið sem fær frábær meðmæli.

Þetta námskeið kennir þátttakendum hvernig á að byrja að nota Microsoft 365 Copilot Chat, semja árangursríkar fyrirspurnir og nýta gervigreindarknúna eiginleika þess til að auka framleiðni, einfalda vinnuferla og vinna saman á öruggan hátt í rauntíma.
Námskeiðið er hugsað fyrir alla starfandi innan fyrirtækis eða skipuheildar sem hafa áhuga að læra undirstöður í Microsoft 365 Copilot til að bæta og auðvelda sína daglegu vinnu.

Þetta námskeið er hugsað fyrir fyrirtækjahópa/ starfsmannahópa / stjórnendahópa.

CoPilot fyrirtækjanámskeið

Smelltu á hnappinn til þess að fá nánari upplýsingar s.s. tímasetningar og verð.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði