Rekstrar- og frumkvöðlanám

Frá hugmynd til framkvæmdar

55.000 kr.

Um námið

Námsleiðin er hönnuð fyrir fullorðna einstaklinga sem vilja þróa viðskiptahugmyndir, stofna eigið fyrirtæki eða efla sig í rekstri. Markmiðið er að veita nemendum hagnýta þekkingu og færni til að fara með hugmynd alla leið í framkvæmd.Námið er ætlað fólki sem er 20 ára eða eldra og hefur stutta formlega skólagöngu að baki. Þessi námsleið er kennd í samstarfi við Mími símenntun og er niðurgreidd af Fræðslusjóði atvinnulífsins.

Gert er ráð fyrir að nemendur hafi grunn tölvufærni ásamt grunnfærni í Excel.

Tilheyrir eftirfarandi braut Sölu, markaðs- og rekstrarbraut
Rekstrar – og frumkvöðlanám – frá hugmynd til framkvæmdar NTV og Mímis-símenntunar hentar sérstaklega þeim sem hafa áhuga á að stofna til eigin reksturs, að efla sig í rekstri og/eða að þróa viðskiptahugmynd alla leið í framkvæmd.
Eftir námið hefur nemandinn öðlast nægjanlega innsýn og færni í viðskipta-, sölu- og markaðsmálum til að undirbúa eigin rekstur eða til að starfa sem sölu- og markaðsfulltrúi stærri fyrirtækja.
Helstu námshlutar sem verður farið í eru:
  • Frumkvöðlafræði og fyrirtækjasmiðja
  • Markaðsrannsóknir
  • Áætlanagerð í töflureikni
  • Verkefnastjórnun
  • Lykiltölur og lausafé
  • Gerð viðskiptaáætlana – Lokaverkefni
  • Samningatækni
Námsmat í námsleiðinni Rekstrar- og frumkvöðlanám – frá hugmynd til framkvæmdar er hannað til að styðja við raunverulega færni og framfarir hvers og eins. Lögð er áhersla á hagnýta verkefnavinnu, leiðsagnarmat og reglulega endurgjöf frá kennurum.

Lokaverkefni staðfestir heildarárangur námsins og styður við faglega þróun. Í lok náms fá nemendur viðurkenningarskjal
Samkvæmt námsskrá, þá er námið um það bil 120 klukkustundir. Námsfrí er alltaf yfir sumarið, jólin og um páska eins og í flestum skólum. Sumarfrí er í náminu frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.
ATH: Mikilvæg ábending fyrir fjarnemendur sem vinna í Mac umhverfi. Námsefni skólans miðast við PC umhverfi í allri Excel kennslu. Það er munur á einstökum aðgerðum á milli Mac og PC, þó hann fari minnkandi. Sá munur liggur aðallega í flýtiaðgerðum á lyklaborðinu. Nemendur í Mac umhverfi verða sjálfir að setja sig inn í þær aðgerðir. Það er í boði fjöldinn allur af hjálparsíðum á netinu sem útskýra þetta sérstaklega.

Rekstrar- og frumkvöðlanám – Fjarnám

Hefst: 24. Sep '26
Lýkur: 15. Dec '26
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu. Sumarfrí er frá miðjum júní fram í miðjan ágúst.

Verð: 55.000 kr.

Rekstrar- og frumkvöðlanám – Kvöldnám

Hefst: 24. Sep '26
Lýkur: 15. Dec '26
Kennsludagar: þriðjudagar og fimmtudagar kl. 18:00-21:30, auk þess sem nemendur vinna verkefni heima. Jólafrí er frá miðjum desember fram fram í miðjan janúar.

Verð: 55.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði