Power Query

Ítarlegt og hagnýtt fyrir alla

24.500 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Excel Power Query er öflugt tól fyrir umbreytingu og greiningu gagna. Þetta námskeið gefur þér færni til að tengja saman, umbreyta og undirbúa gögn á skilvirkan hátt til greiningar án þess að þurfa að styðjast við flóknar formúlur eða þekkingu á gagnasafnsfræðum. Hvort sem þú ert byrjandi eða vilt skerpa færni þína þá einfaldar þetta námskeið meðhöndlun gagna og er öflugt verkfæri í verkfærakistuna.

Á námskeiðinu munum við læra á Power Query viðmótið, æfum okkur á ýmsum tengingum við gagnauppsprettur, umbreytum og skipuleggjum innlesin gögn, fjarlægjum villur og einföldum gögn. Ávinningur þess að kunna vel a Power Query er tímasparnaður í vinnslu á gögnum og bætir gagnadrifna ákvörðun.
Námskeiðið hentar þeim sem vinna með stór gagnasöfn og sérfræðinga sem eru að vinna með og hagræða gagnasöfnum. Námskeiðið hentar einnig byrjendum sem stefna á að auka við sig excel þekkingu á vinnslu gagna.
Engin verkefnaskil eða próf og því ekkert frammistöðumat. Eina staðfesting um þátttöku er greiðslustaðfesting.
Ekkert mat er á vinnuframlag enda eðli námsleiðar slík og undir hverjum og einum komið. Þú getur unnið með námsefnið í 6 mánuði frá því þú skráir þig. Hægt að kaupa framlengingu ef þú óskar.

Power Query – Stafrænt nám

Verð: 24.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði