Verkefnastjórnun

á mannamáli

Price range: 234.500 kr. through 435.500 kr.

Um námið

Verkefnastjórnun á mannamáli er hagnýt námsleið þar sem fjallað er um málefni verkefnastjórnunar frá a-ö og rýnt í heim verkefnastjórans. Nemendur fá tækifæri til að skipuleggja verkefni úr eigin lífi eða starfi með aðferðum verkefnastjórnunar. Námið er einungis í boði í fjarnámi.

Lögð verður áhersla á að veita þátttakendum hagnýtar aðferðir, tól og verkfæri sem geta nýst í almennri stjórnun, skipulagningu og samskiptum innan fyrirtækja sem og í sjálfstæðum verkefnum. Í náminu verður farið yfir grunninn í verkefnastjórnun, leiðtogahæfni og sjálfsþekkingu, árangursríka teymisvinnu, skilgreiningu og skipulag verkefna og samskipti. Nemendur læra að útbúa verkáætlun og fjárhagsáætlun og að framkvæma áhættugreiningu og hagsmunaaðilagreiningu svo eitthvað sé nefnt. Námsleiðin eflir þátttakendur í að stýra verkefnum sem sterkir leiðtogar og að setja af stað, fylgja eftir og ljúka verkefnum svo allir hagsmunaaðilar séu sáttir.

Námsleiðin getur nýst sem grunnur fyrir D-vottun í verkefnastjórnun hjá Verkefnastjórnunarfélagi Íslands
Verkefnastjórnun er sífellt mikilvægari þáttur í almennri stjórnun og er aðferðafræði hennar notuð í nánast öllu starfi nú til dags. Því má hagnast verulega á því að kunna aðferðafræði verkefnastjórnunar á vinnumarkaði í dag og geta tól verkefnastjórnunar skapað ákveðið samkeppnisforskot fyrir þá sem kunna að nota þau.

Námskeiðið er ætlað fyrir bæði stjórnendur og einstaklinga sem:


  • Vilja efla sig í skipulagningu og yfirsýn verkefna, samskiptum við þverfagleg teymi og utanaðkomandi hagsmunaaðila.
  • Þurfa að nota verkefnastjórnun í stínu starfi, þurfa að ná góðri yfirsýn og drífa verkefni áfram af öllum stærðum og gerðum.
  • Vilja nýta sér verkfæri og aðferðir verkefnastjórnunar.
  • Fyrir þá sem vilja efla sig sem leiðtogar.
  • Fyrir þá sem vilja undirbúa sig fyrir D-vottun í verkefnastjórnun.
    •  
Það sem við viljum að þú fáir út úr námskeiðinu er að þú:
  • Ná góðum skilningi á helstu aðferðum faglegrar verkefnastjórnunar.
  • Öðlist breiða innsýn í helstu aðferðir sem nýttar eru í verkefnastjórnun.
  • Að veita þér aðgengi að aðferðum og hagnýtri verkfærakistu sem þú getur nýtt í daglegri stjórnun verkefna.
    •  
Námið er 6 vikna lotunám, verkefnaskil og diplóma:

Lota 1
Inngangur í verkefnastjórnun og heim verkefnastjórans

Lota 2
Leiðtogahæfni og samskipti

Lota 3
Undirbúningur verkefna

Lota 4
Undirbúningur verkefna (framhald)

Lota 5
Framkvæmd verkefna og verkefnaskil

Lota 6
Lokaverkefni og kynning

Hver lota er ein vika. Hver lota skiptist í myndbandsfyrirlestra, glærur, verkefni og ítarefni. Þátttakendur fá allt námsefni og ítarefni í upphafi hverrar lotu ásamt verkefnum til að vinna þegar það á við.

Verkefni eru að eigin vali og geta verið hluti af raunhæfum verkefnum sem tengjast þínu starfi eða þínum áhugamálum. Eins geta verkefnin verið skálduð eða verkefni sem búið er að framkvæma. Allar verkefnahugmyndir þarf að leggja fyrir kennara í upphafi svo hægt sé að meta hvort þau séu raunhæf vegna t.d. tímalengdar eða umfangs.
Þeir þátttakendur sem vinna vel verkefni fá frammistöðumat frá skólanum en það er auðvitað valfjrálst öllum hvort þeir geri það. Þeir sem vinna samviskusamlega og skila verkefnum fá Diplóma frá NTV skólanum með einkunnum.
Skólinn áætlar að hver nemandi þurfi að verja um 10-15 klukkustundum á viku í viðkomandi námsleið, að því gefnu að viðkomandi leggi sig fram. Það er auðvitað breytilegt eftir einstaklingum og áhuga og metnaði viðkomandi. Nemendur fá frammistöðumat/einkunnir að námi loknu, og má gera ráð fyrir að samhengi sé á milli vinnuframlags og frammistöðu.
Námsefnið, verkefnin og nemendaumhverfið:

Námsefnið er í formi kennslumyndbanda sem leiðbeinendur og skólinn hafa framleitt, lesefni, ítarefni auk verkefna. Nemendur fá aðgengi að því efni sem tengist hverri lotu við upphaf lotunnar. Aðgengið að námsefninu og samskipti við leiðbeinendur er í gegnum nemendaumhverfi skólans. Hluti af námsefninu getur verið á ensku, þá aðallega ítarefni.
Verkefni geta verið greinargerðir, aðgerðaráætlun, próf/quiz eða hvað sem kennarar í fjarnámi telja að henti best hverju viðfangsefni. Nemendaumhverfi skólans er í gegnum Office 365 umhverfið, þar sem öll miðlun á efni og samskipti eru í Teams, í lokuðum hópi. Á fyrsta degi, þegar námið hefst, fá nemendur sendan aðgang að nemendasvæðinu svo fremi sem þeir hafa gengið frá greiðslum/greiðslusamkomulagi.

Verkefnastjórnun – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 435.500 kr.

41.888 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Verkefnastjórnun – Fjarnám

Hefst: 25. Feb '26
Lýkur: 15. Apr '26
Fjarnám í 6 lotum. Verkefnaskil, endurgjöf og diplóma í boði.

Verð: 335.000 kr.

32.336 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Verkefnastjórnun – Sjálfsnám

Byrjaðu strax í dag.

Verð: 234.500 kr.

22.783 kr/mán
(m.v. 12 mán)