Gagnameistari II

Sérfræðingur í gagnavinnslu & greiningu (advanced)

524.500 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Gagnameistari II er framhaldsnám í gagnavinnslu og gagnagreiningu sem byggir á þeim grunni sem lagður er í Gagnameistara I. Námið leggur áherslu á hagnýta færni og dýpri skilning á því hvernig gagnainnviðir, skýjalausnir og nútímatól styðja við gagnadrifnar og upplýstar ákvarðanir. Kennslan byggir á verkefnatengdu námi með fræðilegum undirstöðum, þar sem sérstök áhersla er lögð á notkun Microsoft Fabric og samþættingu gagna, ferla og greininga í heildstæðu umhverfi.
Námið er fyrir þá sem vilja dýpka þekkingu sína á gagnavinnslu og gagnagreiningu og vinna með þróaðri verkfæri og lausnir. Það hentar sérstaklega þeim sem hafa lokið Gagnameistara I eða búa yfir sambærilegri þekkingu og reynslu af gagnavinnu og vilja efla hæfni sína til að styðja við stefnumótun, umbreytingar og gagnadrifna ákvarðanatöku innan fyrirtækja og stofnana.
Að loknu námi eiga þáttakendur að:
  • Hafa dýpri skilning á gagnavinnslu, gagnagreiningu og gagnainnviðum.
  • Geta nýtt skýjalausnir og nútímatól til að styðja við gagnadrifnar ákvarðanir.
  • Kunna að vinna markvisst í Microsoft Fabric umhverfinu.
  • Geta hannað og þróað lausnir sem samþætta gögn, ferla og greiningar.
  • Vera betur í stakk búnir til að vinna að flóknari gagnaverkefnum í atvinnulífinu.
 
Helstu atriði sem farið er yfir:
  • Gagnavinnsla.
  • Gagnavöruhús.
  • Gagnabreyting.
  • Sjálfvirkar Lausnir/ Sjálfvirknivæðing.
Sjá nánar → Gagnameistari II – Námslýsing
Þessi námsleið veitir diplóma svo fremi sem nemendur standist frammistöðumat

Meðmæli

Ég valdi Gagnameistarann af því mér fannst námslýsingin góð og mér leist vel á kennarana sem vinna dags daglega með viðfangsefni námsins. Þetta er auðvitað bara ein önn og í raun bara einn áfangi sem snerti á yfirborðið á mörgum atriðum aðallega innan Microsoft heimsins sem er kostur sérstaklega á íslandi þar sem flest fyrirtæki...

Oddur Einarsson, Bcs í Vélaverkfræði, starfar hjá Carbfix

Ég skráði mig í námið til þess að auka þekkingu mína á þeim hugbúnaði sem er notaður í gagnagreiningu og var þá aðallega með augun á PowerBI en ég kynntist gagnagreiningu aðeins í masternáminu mínu í reikningshaldi og endurskoðun og þar kviknaði áhuginn. Fyrir námskeiðið hafði ég grunnþekkingu á SQL og Tableau (annar hugbúnaður í...

Benedikt Arnar Oddson, M.Acc í reikningshaldi og endurskoðun og starfsmaður í ferðaþjónustu hjá GTS ehf.

Í fyrirtækjarekstri í dag nýtum við allskyns kerfi til að einfalda viðskiptavinum og starfsfólki dagleg störf. Afleiðingin er sú að gögn hrannast upp hjá okkur sem flækir orðið afstemmingar og greiningar. Ástæðan fyrir því að ég fór í Gagnameistarann var tvíþættur: Annars vegar að kynna mér þau tæki og tól sem notuð eru í dag...

Agnar Már er framkvæmdastjóri golfklúbbs GKG og situr i stjórn Jónar Transport

Gagnameistari II – Fjarnám

Hefst: 13. Oct '26
Lýkur: 1. Dec '26

Verð: 524.500 kr.

50.826 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Gagnameistari II – Kvöldnám

Hefst: 13. Oct '26
Lýkur: 1. Dec '26
Verkefnatímar á þriðjudögum17:30-21:00.

Verð: 524.500 kr.

50.826 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði