Magnús Ívar Guðlaugsson

er stofnandi og framkvæmdastjóri ANSA ehf. sem vinnur með viðskiptavinum við að ná bættum árangri i rekstri með umbreytingu ferla ásamt faglegri verkefna- og breytingastjórnun. Magnús Ívar hefur unnið í ráðgjöf í stefnumótun, ferlamálum og úrbótum í rekstri hjá framsæknum fyrirtækjum og stofnunum hérlendis sem og í verkefnum erlendis. Starfsreynsla Magnúsar Ívars spannar m.a. Símann, Mílu, Vodafone, Deloitte, Össur og Marel. Hjá Össur starfaði Magnús í fjögur ár sem verkefnastjóri í stefnumótandi verkefnum og breytingastjórnun með áherslu á stjórnun viðskiptaferla í forgrunni. Þá starfaði hann í fimm ár sem forstöðumaður þjónustu (e. global service) hjá Marel í miklum umbreytingum á þjónustu hjá fyrirtækinu. Nánar um Magnús hér

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði