Áætlanagerð í Excel

Áætlanamódel fylgir

125.000 kr.

Um námið

Áætlanagerð í Excel er hagnýtt námskeið fyrir þá sem vilja styrkja færni sína í rekstrar-, fjárhags- og fjárfestingaáætlanagerð. Í námskeiðinu er farið skref fyrir skref yfir helstu grundvallaratriði áætlanagerðar og þátttakendur byggja upp raunhæft fjárhagslíkan í Excel. Farið er meðal annars yfir forsendur, tekjur, kostnað, fjármögnun, rekstraráætlanir, efnahagsreikning, sjóðstreymi og greiðsluáætlanir. Þátttakendur fá ítarlegt Excel-módel sem hægt er að hlaða niður og aðlaga að eigin rekstri eða verkefnum. Módelið nýtist sem hagnýtt verkfæri við áframhaldandi áætlanagerð og greiningu.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja læra að setja upp og vinna með fjárhagsáætlanir í Excel. Það hentar meðal annars þeim sem starfa við fjármál, rekstur og fjárfestingar og öllum sem vilja styrkja færni sína í fjárhagslegri greiningu og áætlanagerð.

Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi grunn kunnáttu á Excel. Ef ekki þá mælum við með að fólk taki fyrst námsleiðina Excel grunnur.

Að loknu námi eiga þátttakendur að:

  • Skilja helstu hugtök og aðferðir sem notaðar eru við áætlanagerð fyrirtækja.
  • Geta lesið og greint upplýsingar úr ársreikningum.
  • Geta metið stofnkostnað og fjármögnunarþörf verkefna.
  • Geta byggt upp fjárhagslíkan í Excel út frá forsendum og rekstraráætlunum.
  • Geta sett upp tekju-, kostnaðar- og rekstraráætlanir.
  • Geta útbúið efnahagsreikning, sjóðstreymi og greiðsluáætlun.
  • Geta unnið með fjárhagslegar forsendur og metið áhrif breytinga á rekstur fyrirtækis.
  • Vera betur í stakk búin til að taka þátt í gerð og greiningu fjárhagsáætlana í Excel.

Áætlanagerð í Excel

Heildarlengd: 1 klst. 51 mín.
1. hluti: Grunnatriði áætlanagerðar og fjárhagsgreiningar 34 mín.
  • 1.1 Fjárhagsleg afkoma fyrirtækja 8 mín.
  • 1.2 Kynning á verkefni og vinnulíkani 1 mín.
  • 1.3 Lestur og greining ársreikninga 10 mín.
  • 1.4 Áætlanagerð 4 mín.
  • 1.5 Fjárhagsáætlun 2 mín.
  • 1.6 Stofnkostnaður 3 mín.
  • 1.7 Fjármögnun 2 mín.
  • 1.8 Raunhæft verkefni. 4 mín.
2. hluti: Raunhæft Excel módel 1 klst. 17 mín.
  • 2.0 Forsendur og stofnkostnaður 9 mín.
  • 2.1 Stofnefnahagur 4 mín.
  • 2.2 Selt magn og tekjur 5 mín.
  • 2.3 Kostnaðaráætlun 11 mín.
  • 2.4 Bankalán 4 mín.
  • 2.5 Rekstrar- og fjárhagsáætlun 6 mín.
  • 2.6 Leiðréttingar og úrbætur 4 mín.
  • 2.7 Efnahagsreikningur 10 mín.
  • 2.8 Sjóðstreymi 7 mín.
  • 2.9 Rekstraráætlun fyrir ár 2 og 3 12 mín.
  • 2.10 Greiðsluáætlun 4 mín.
  • 2.11 Samantekt og yfirferð líkans 3 mín.
Þetta námskeið er sjálfsnám þar sem þátttakendur vinna sjálfstætt með námsefnið. Ekki er veitt formleg vottun eða einingar fyrir námsárangur.
Áætlað vinnuframlag er 3-4 klukkustundir. Námið er sjálfsnám og þátttakendur stýra sjálfir hraða og framvindu námsins.

Áætlanagerð í Excel – Sjálfsnám

Getur byrjað strax og hefur 180 daga til að klára. Framlenging á tíma í boði.

Verð: 125.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði