Advania styrkur til náms í kerfisstjórnun

14. ágúst, 2024

Advania ætlar að styrkja eina konu til náms hjá NTV skólanum í Kerfisstjórnun Diplómanám.

Í samstarfi við Advania er sérstakt átak í gangi núna til að vekja athygli kvenna á kerfisstjórnun. Mikil eftirspurn er eftir menntuðum kerfisstjórum í atvinnulífinu en hingað til hafa karlar verið í miklum meirihluta þeirra sem sinna starfinu. Advania styrkinn er sem nemur 50% af námskeiðsgjöldum námsbrautarinnar. Áhugasamir einstaklingar eru beðnir um að skrifa um það bil 300-400 orða greinargerð með námsumsókninni um hvers vegna það hafi áhuga á náminu og lýsingu á því hvers vegna það ætti að fá styrkinn. Nauðsynlegt er að taka fram neðst í umsókninni á skráningasíðunni (sem er hér) að sótt sé um Advania-styrkinn undir liðnum Athugasemdir. Greinagerðina skal senda á [email protected] í síðasta lagi 25. ágúst. Nánari umfjöllun: https://advania.is/styrkur-til-nams-i-kerfisstjornun/?utm_source=facebook&utm_medium=social&utm_campaign=styrkur

Skráning í kerfisstjórnun hér:

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði