Gagnameistarinn, margir mjög sáttir -nokkrar reynslusögur.

27. janúar, 2023

Gagnameistarinn, er nýleg námsleið hjá NTV skólanum, þar sem áherslan er á gagnagreiningu og högun og framsetningu stjórnendaupplýsinga.  Mikill  metnaður hefur verið lagður í þessa námsleið og sérfræðiteymið sem sér um kennsluna er einstakt. Mörgum hefur gengið vel að vinna með eigin gögn og gagnaumhverfi og þótt það mjög gagnlegt og verðmætt.

Við höfum fengið einstaklega jákvæðar reynslusögur frá nokkrum aðilum, sem eru áhugaverðar og þú getur lesið betur um það hér.

„Kom skemmtilega á óvart hvað það er auðvelt að búa til app í Power Apps og tengja við gagnasöfn og vinna úr.“  Oddur Einarsson, Bcs í vélaverkfræði, starfar hjá Carbfix.

„Áhugi á gagnagreiningu kviknaði í mastersnámi í reikningshaldi og endurskoðun. Valdi fjarnám og mæli eindregið með.“  Benedikt Arnar Oddson, M.Acc í reikningshaldi og endurskoðun og starfsmaður í ferðaþjónustu hjá GTS ehf.

„Góð fjárfesting sem nýtist bæði mér og fyrirtækinu“ Agnar Már er framkvæmdastjóri golfklúbbs GKG og situr i stjórn Jónar Transport

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði