Það geta allir fært bókhaldið sitt að öllu eða einhverju leiti.
Við kennum þér að færa bókhaldið í því bókhaldskerfi sem þú ert að nota eða vilt nota.
Ef þú ert með rekstur þá þarftu enga sértaka kunnáttu eða reynslu þú þarft einungis að mæta til okkar með bókhaldsgögnin og við leiðum þig af stað.
Ef þú ert ekki með bókhaldskerfi þá getum við hjálpað þér að velja rétta lausn sem hentar þér best.
Mættu á eina vinnustofu og þú munt öðlast nýja sýn.
Við kennum á Uniconta, DK, Payday og Reglu. Þú getur fengið aðgang að bókhaldskerfi en þarft að koma með þín gögn.
Fyrir hverja ?
Hugsað fyrir þá sem eru með eigin rekstur og/eða eru að færa bókhald.
Leiðir í boði
Markmið
Námsþættir
Um er að ræða vinnustofur í staðarnámi sem spanna 3 klukkustundir í senn. Þær verða haldnar í húsnæði skólans að Hlíðasmára 9 Kópavogi, á miðvikudögum klukkan 16.00-19.00.
Þátttakendafjöldi er takmarkaður og mikilvægt að fólk velji sér dagsetningu til að mæta með því að senda beiðni á [email protected]
Frammistöðumat / Diplóma
Annað
Greiðslumöguleikar
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:
1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729
2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]
3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða
4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða
5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða
Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér
Kr. 30.000 / 1x vinnustofa miðvikudagur frá kl. 16:00-19:00. Veldu miðvikudag sem hentar og settu í athugasemd í skráningu. Vinsamlega sendu líka beiðni á [email protected] þar sem hún mun staðfesta daginn.
Kem beint úr námi hjá NTV og vildi fá þjálfun í að gera sjálf
Ég skráði mig í nám hjá NTV til að læra bókhald þar sem maðurinn minn er að reka eigið fyrirtæki. Markmiðið var að geta séð...
Stephanie Mauler
Er búinn að vera í rekstri og vildi dýpka mig í bókhaldi
Ég hef rekið fyrirtæki í nokkur ár og fannst ég þurfa að dýpka mig betur í bókhaldinu. Fór á Vinnustofu í bókhaldi hjá NTV sem...
Jón Karlsson
Er í sjálfstæðum rekstri sem lögmaður og vildi spara mér tíma og auka yfirsýn
Ég er lögmaður og hef verið í sjálfstæðum rekstri í rúmt ár. Ég lét færa bókhaldið fyrir mig en það fór samt töluverður tími í það hjá mér að hafa reiður á gögnum og útskýra...