Rekstur og áætlanagerð

Excel líkan og þín viðskiptaáætlun

Price range: 245.000 kr. through 375.000 kr.

Um námið

Rekstur og áætlanagerð er hagnýtt og verkefnadrifið nám sem byggir á raunhæfum verkefnum úr atvinnulífinu. Það skiptist í þrjá meginþætti: (1) Rekstur og lykiltölur; (2) Áætlanagerð í Excel og (3) Gerð viðskiptaáætlunar.

Unnið er með raunhæf verkefni úr atvinnulífinu og þú þátttakendur fá sérhannað Excel-líkan og geta unnið eigin viðskiptaáætlun sem lokaverkefni.

Bæði er í boði að taka þessa námsleið í (1) Frelsi, þá vinnur hver nemandi á sýnum hraða með aðstoð leiðbeinanda eftir þörfum, skilar verkefnum og fær endurgjöf og aðstoð. Einnig er í boði að taka það í (2) Sjálfsnámi sem er ódýrara og þú ert þá ekki að vinna með aðstoð frá leiðbeinanda, né að fá endurgjöf.
Námsleiðin er fyrir þá sem starfa við fjármál og rekstur og vilja styrkja grunnþekkingu sína án þess að hafa sérmenntun á því sviði. Hún hentar einnig þeim sem ætla sér að vinna að eigin rekstrar- eða viðskiptaáætlun.

Gert er ráð fyrir grunnkunnáttu í Excel, annars er mælt með að taka fyrst námskeið í tölvu- og reiknifærni eða Excel-grunni.
Að loknu námi eiga þátttakendur að:
  • Hafa öðlast góða grunnþekkingu á þeim þáttum sem snúa að rekstri og fjárhagslegri afkomu fyrirtækja.
  • Geta gert einfaldar fjárhagslegar greiningar og rekstraráætlanir.
 
Námsleiðin skiptist upp í þrjá meginflokka:
I.Rekstur og lykiltölur
1. Grunnhugtök í rekstrarhagfræði
2. Fjárhagsleg afkoma fyrirtækja
3. Bókhald og ársreikningar
4. Tekjuskattur
5. Virðisaukaskattur
6. Launatengd gjöld
7. Lykiltölur úr rekstri
 
II.Áætlanagerð í Excel
1. Forsendur áætlanagerðar
2. Tekjuáætlun
3. Kostnaðaráætlun
4. Rekstraráætlun
5. Efnahagur
 
III.Gerð viðskiptaáætlunar
1. Viðskiptahugmynd
2. Ytri greining
3. Innri greining
4. Vöruþróun
5. Staðsetning vöru á markaði
6. Framtíðarsýn og markmiðasetning
7. Aðgerðaráætlun
8. Rekstraráætlun
9. Stofn efnahagur
10.Samantekt
 
Sjá nánar →  Rekstur og áætlanargerð – Námslýsing

Rekstur og áætlanagerð – Fjarnám í frelsi

Þú vinnur einn á móti kennarar, kallar eftir leiðsögn eftir þörfum. Færð aðstoð og endurgjöf við áætlanagerð og gerð viðskiptaáætlunar. Getur byrjað strax við greiðslu og hefur 180 daga til að klára. Framlenging á tíma í boði.

Verð: 375.000 kr.

36.464 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Rekstur og áætlanagerð – Sjálfsnám

Getur byrjað strax og hefur 180 daga til að klára. Framlenging á tíma í boði. Þú færð aðgengi að öllu námsefni, sniðmátum og verkefnum þar sem við á. Ekki stuðningur og endurgjöf frá kennara og ekki frammistöðumat.

Verð: 245.000 kr.

23.995 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði