Word 365

Ítarlegt sjálfsnám hlaðið kennslu- og hjálparefni

19.500 kr.

Um námið

Frábær námskeið fyrir þá sem vilja í alvörunni læra á Word frá grunni. Það er mjög hagnýtt og ítarlegt, það er ríkulega búið verkefnum, úrlausnum og íslensk kennslubók á rafrænu formi fylgir. Þú getur byrjað strax og þú greiðir og hefur aðgengi í 6 mánuði (180 daga). Námskeiðið er sett upp sem sjálfsnám þar sem þú átt að komast vel í gegnum það án sérstakrar hjálpar. Áhugasamir geta tekið fullgilt próf hjá skólanum í lok námskeiðs. Námskeiðið gerir ráð fyrir að þú hafir frekar nýlega útgáfu af Word, ef ekki þá gæti útlit og einstaka skipanir virkað með öðrum hætti.
Fyrir alla sem vilja læra frá gunni að nýta sér Word hugbúnaðinn. Að setja fram á faglegan hátt texta, umsóknir, ritgerðir, myndskreyttar tilkynningar, CV eða hvað annað. Markmið skólans er að þetta sé einstaklega ríkulega búið námskeið á vægu verði.

Word 365 – Sjálfsnám

Verð: 19.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði