Search
Close this search box.

Kerfisrekstur í skýi

VERÐ

745.000 kr.

UM NÁMIÐ

Þessi námslína, kerfisrekstur í skýji, er fyrir alla kerfisstjóra sem hafa áhuga á að efla sig í rekstri og stjórnun skýjaþjónustu samhliða staðarumverfum. Námslínan er framhald af kerfisstjórnun grunnur. Námskeiðið er undirbúningur fyrir alþjóðlegar vottanir frá microsoft (valfrjálst), sjá í frammistöðumat.
Námskeiðið hentar núverandi kerfisstjórum sem hafa áhuga á að efla sig og/eða uppfæra þekkingu sína á skýjarekstri með áherslu á í Microsoft 365. Þátttakendur þurfa að þekkja a.m.k. grundvallaratriði úr Microsoft Active Directory til að geta fengið sem mest út úr þessum námslhluta. Slíkur undirbúningur er hluti af Grunnur í kerfisstjórnun Gert ráð fyrir að fólk sem starfar í kerfisstjórnun og kemur inn á þessa námsleið hafi einhverja reynslu og þekkingu á rekstri og þjónustu staðar-kerfa ("On-premises") og hafi kynnt sér Microsoft 365 og Azure. Fyrir þá sem ekki hafa slíka reynslu þá ættur þeir fyrst að taka námslhlutann Grunnur í kerfisstjórnun sem er mjög góður grunnur fyrir þetta námskeið. Nemendur þurfa að hafa þekkingu á Active Directory og Microsoft Entra ID.
Markmiðið er að nemendur séu undirbúnir fyrir fyrrnefnd próf. Nemendur sem ljúka námskeiðinu og standa sig með prýði eru færir um að stýra minni og meðalstórum Microsoft tölvukerfum, reynslumeiri nemendur geta nýtt þekkinguna til að stýra stærri kerfum. Nemendur eiga að geta aflað sér frekari þekkingar í faginu á eigin spýtur.
Nemendur eiga að hafa öðlast eftirfarandi færni að loknu námi: Geta sett upp og stjórnað Microsoft 365 skýjaumhverfi. Geta samtengt staðar umhverfi (Active Directory) við Microsoft 365 skýjaumhverfi. Geta forritað og sjálfvirknivæða kóða með Power Platform. Hafa þekkingu á grundvallarhugtök gervigreindar (AI) og hvernig hægt er að nota þjónustur Microsoft Azure til að búa til AI lausnir. Hafa þekkingu á Microsoft Teams stjórnborðs hluta og stýrt innleiðingu á umhverfi. Geta sett upp símkerfishluta Microsoft Teams við fjarskiptafyrirtæki. Þekkja helstu öryggishættur og vita hvernig á að verjast þeim. Hafa hlotið þjálfun, með lokaverkefni, til að skipuleggja tölvukerfi.
Nemendur og þátttakendur sem klára verkefni og próf, eins og við á, fá að námi loknu frammistöðumat, sem tilgreinir námsmarkmið og heildareinkunn viðkomandi. Kerfisstjórar og fólk með reynslu úr kerfissrekstri, sem kemur á þessa námslínu til að efla sig í starfi er frjálst hvort það skilar verkefnum eða lýkur prófum, en fá á móti þá ekki frammistöðumat. NTV skólinn er alþjóleg prófamiðstöð í samstarfi við Person VUE, og þessi námshluti miðar markvisst að því að undirbúa fólk fyrir alþjóðlegar vottanir frá Microsoft: Microsoft 365 Administrator (MS-102). Create and Manage Canvas Apps with Power Apps (PL-7001). Create and Manage Automated Processes by using Power Automate (PL-7002). Create and Manage Model-Driven Apps with Power Apps and Dataverse (PL-7003). Azure AI Fundamentals (AI-900). Managing Microsoft Teams (MS-700). Collaboration Communications System Engineer (MS-721). Microsoft Security, Compliance, and Identity Fundamentals (SC-900). Microsoft Security Operations Analyst (SC-200).
Skólinn er bæði Microsoft Learning Partner ásamt því að vera viðurkenndur sem Cisco Academy. Hjá skólanum kenna sérfræðingar sem á sama tíma eru að starfa á fullu í framsæknum íslenskum fyrirtækjum og er því öll þekking, kennsla og verkefni í miklum tengslum við það sem er að gerast í atvinnulífinu á hverjum tíma. Kennarar eru með alþjóðlega vottun, Microsoft Certified Trainer. Allt kennsluefni er frá Microsoft og Cisco. Námskeiðið er hluti af þessum námsbrautum: • Kerfisstjóri Diplómanám • Kerfisstjóri og Netstjóri Diplómanám FYRIRTÆKI LEITA MIKIÐ TIL NTV EFTIR STARFSFÓLKI. VIÐ VILJUM BENDA Á AÐ FYRIRTÆKI, STÓR OG SMÁ, LEITA Í AUKNUM MÆLI EFTIR STARFSFÓLKI ÚR NEMENDAHÓPI NTV. VIÐ MÆLUM AÐ SJÁLFSÖGÐU MEÐ OKKAR GÓÐU NEMENDUM.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Kerfisrekstur í skýi – Fjarnám

Hefst: 13. Jan '25
Lýkur: 1. Jun '25
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu. Kennslunni er streymt beint og síðan upptökur aðgengilegar.

Verð: 745.000 kr.

Kerfisrekstur í skýi – Kvöldnám

Hefst: 13. Jan '25
Lýkur: 1. Jun '25
Dagar: Mánudaga og miðvikudaga (kl. 17:30-21:00) og valda laugardaga (kl. 09:00-16:00)

Verð: 745.000 kr.