Framtal og skattskil

69.000 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Hagnýtt hjálpargagn við gerð skattframtals og við skattskil sem miðar að því að auka skilning og færni. Fyrir minni fyrirtæki, rekstraraðila og einstaklinga með eigin rekstur. Farið í gegnum helstu skref við útfyllingu og afstemmingar á eyðublöðum og rekstrarskýrslum hjá Skattinum.

Stafrænt námskeið sem veitir góðar leiðbeiningar og stuðning fyrir þá sem ætla að vinna við framtal einstaklings með rekstur eða lítils fyrirtækis.

Í námskeiðinu verður farið yfir helstu þætti sem snúa að íslensku skattaumhverfi og skattskilum rekstraraðila og einstaklinga með rekstur. Sýnd verða dæmi um gerð skattframtala fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur og lítil einkahlutafélög.

Námskeiðið hentar eigendum smærri fyrirtækja, einstaklingum með eigin rekstur, bókarastarfsmönnum og öðrum sem vilja auka skilning sinn á framtalsgerð og skattskilum.

Að loknu námi eiga þátttakendur að:

  • Þekkja uppbyggingu íslenska skattkerfisins og helstu skatttegundir.
  • Skilja meginatriði staðgreiðslu tekjuskatts og launatengdra gjalda.
  • Skilja grunnatriði virðisaukaskatts.
  • Þekkja helstu upplýsingar og uppbyggingu ársreiknings.
  • Þekkja uppsetningu og helstu efnisþætti skattframtals einstaklinga með atvinnurekstur (RSK 4.11).
  • Þekkja uppsetningu og helstu efnisþætti skattframtals rekstraraðila (RSK 1.04).
  • Vera betur í stakk búin til að taka þátt í undirbúningi og yfirferð framtala og skattskila.

Framtal og skattskil

Heildarlengd: 4 klst. 5 mín.
Inngangur 3 mín.
  • 0. Leiðbeiningar um yfirferð námskeiðs 3 mín.
Grunnatriði skattkerfisins 1 klst. 21 mín.
  • 1.1 Skattkerfið 16 mín.
  • 1.2 Staðgreiðsla tekjuskatts 27 mín.
  • 1.3 Launatengd gjöld 5 mín.
  • 1.4 Virðisaukaskattur 15 mín.
  • 1.5 Ársreikningur 18 mín.
Skattframtal einstaklinga með atvinnurekstur (RSK 4.11) 54 mín.
  • 2.0 Skattframtal einstaklinga með atvinnurekstur (RSK 4.11) 54 mín.
Skattframtal rekstraraðila (RSK 1.04) 1 klst. 47 mín.
  • 3.0 Skattframtal rekstraraðila (RSK 1.04) 1 klst. 47 mín.
Þetta námskeið er sjálfsnám þar sem þátttakendur vinna sjálfstætt með námsefnið. Ekki er veitt formleg vottun eða einingar fyrir námsárangur.
Áætlað vinnuframlag er 5-6 klukkustundir. Námið er sjálfsnám og þátttakendur stýra sjálfir hraða og framvindu námsins.

Framtal og skattskil – Sjálfsnám

Verð: 69.000 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði