Námið er ætlað þeim sem vilja öðlast haldbæra þekkingu á sviði bókhalds. Námið byggir á kennslu og verklegum æfingum, þar sem nemendur fá mikið af hagnýtum verkefnum til að undirbúa þá á sem bestan hátt fyrir starf tengdu bókhaldi. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda undir handleiðslu kennara. Árangursríkasta leiðin til að ná góðum tökum á bókhaldi er endurtekning og er mikilvægt að nemendur gefi sér tíma til í heimanám. Allir námsþættir eru kenndir frá grunni og lýkur þeim með prófi.