99.500 kr.–234.500 kr.Price range: 99.500 kr. through 234.500 kr.
Um námið
Í Adobe Photoshop eru kennd helstu atriði í myndvinnslu með áherslu á ljósmyndir og faglega meðferð þeirra. Í náminu er farið yfir grunnverkfæri og aðferðir forritsins, þar á meðal myndvinnslu, upplausn, lagavinnu og samsetningu mynda. Einnig er fjallað um nýjustu tækni og gervigreindarlausnir sem einfalda vinnuferla og auka skilvirkni. Námið er hagnýtt og verkefnadrifið.
Fyrir hverja?
Þetta nám er fyrir þá sem vilja læra að vinna markvisst í Adobe Photoshop og öðlast trausta grunnfærni í myndvinnslu. Það hentar byrjendum sem vilja vinna með ljósmyndir, laga og breyta myndum og nýta Photoshop í námi, starfi eða skapandi verkefnum.
Markmið
Að loknu námi eiga þátttakendur að
Hafa góða yfirsýn yfir helstu verkfæri og vinnuferla í Adobe Photoshop.
Geta unnið sjálfstætt með ljósmyndir, lagað, breytt og sameinað myndir.
Skilja grunnatriði upplausnar, lagavinnu og myndmeðferðar.
Kunna að nýta nýjustu tækni og gervigreind til að einfalda og bæta myndvinnslu.
Námsþættir
Helstu atriði sem farið er yfir:
Preferences.
Shortcuts.
Vinnuumhverfi.
Ljósmyndir.
Upplausn.
Stærðir.
Layers.
Maskar.
Transform.
Blending Modes.
Auto Align.
Auto Blend.
Photomerge.
Sky Replacement.
Velja = Grundvallaratriði / Geometrísku / Lasso / Litatengdu / Color Range / Gardína.
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.
Byrjaðu strax og þú vinnur einn á móti kennara (ekki í hópi) og hefur mun lengri tíma til að sinna náminu eða 180 daga. Að sama skapi getur þú líka unnið mun hraðar en í staðar- og fjarnáminu þar sem þú fylgir hópi og námsdagskrá.
Getur byrjað strax og hefur mun lengri tíma til að vinna í námskeiðinu eða 180 daga. Þú ert með aðgengi að öllu námsefninu og öllum verkefnum en ert ekki með kennara.