Search
Close this search box.

Grafísk hönnun

VERÐ

243.750 kr.422.500 kr.

UM NÁMIÐ

Ítarlegt, hagnýtt og verkefnadrifið grunnnámskeið fyrir þá sem vilja læra á nýjustu útgáfu af grafík forritunum frá Adobe. Frábært fyrir þá sem vilja útbúa eigið auglýsinga- og kynningarefni hvort sem er á samfélagsmiðla eða prent. Einnig fyrir þá sem ætla í listnám eða háskólanám í grafískri hönnun. Eitt vinsælasta námskeiðið hjá NTV frá upphafi.

Kennt á:
Photoshop (myndvinnsla)
Illustrator (teikning)
InDesign (hönnun og umbrot)
Markmið námskeiðsins er að nemendur geti komið frá sér hugmyndum á tölvutæku formi og að frágangur allra verka sé eins og best verður á kosið.
Kennt bæði í staðarnámi (síðdegis- og kvöldnámskeið) og fjarnámi.
Fyrir þá sem vilja læra að gera rafrænt auglýsinga- og kynningarefni eða bæklinga frá grunni.

Inntökuskilyrði: Nemendur þurfa að hafa haldgóða þekkingu á Windows-stýrikerfinu og reynslu af netnotkun. Ekki er krafist þekkingar á teikni-, myndvinnslu- eða umbrotsforritum. Nemendur þurfa að geta lesið ensku þar sem námsgögn eru að hluta til á ensku.
    Staðarnám
    Kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu. Þátttakendur í staðarnámi hafa einnig aðgengi að fjarnámsefninu, bæði til upprifjunar og ef þú missir úr kennsludaga.

    Fjarnám
    Tímarammi afmarkaður(upphaf og endir) eins og í staðarnáminu og sami hraði á námsyfirferð. Þú hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar þú sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Þú ert hluti af hópi sem fylgist að ásamt leiðbeinenda/-um inn á nemendasvæði og ert með einkasvæði milli þín og kennara. Allt kennsluefni rafrænt. Ef það eru fundir og/eða streymi úr kennslu þá er það allt aðgengilegt á upptökum ef þú tekur ekki þátt í þeim.

    Blandað staðar- og fjarnám eftir vild
    Sérlega áhugavert og hentugt fyrir þá sem vilja koma þegar hentar og geta unnið í fjarnámi þess á milli. Einungis skilyrði að boða komu sína í staðarnámið með tveggja daga fyrirvara(þe 2 virkir dagar).

    Fjarnám í frelsi - getur byrjað strax!
    Þú getur skráð þig, greitt og byrjað samstundis. Þú færð tvöfalt lengri tíma (180 daga) til að klára námið en í hefðbundna línulega fjar- eða staðarnáminu eða klárað á styttri tíma. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð. Þú hefur val hvenær þú skilar verkefnum og hvenær þú tekur próf. Námið veitir sama útskriftarskírteini (Diplóma) og hefðbundna námið. Þjónustumarkmið skólans er að þátttakendur fái endurgjöf ekki síðar en inna 7 virkra daga. Endurgjöf á stór skilaverkefni (próf þegar það á við) getur tekið lengri tíma, en þá fá þátttakendur upplýsingar um það. Rauðir dagar telja ekki með, lokað er fyrir slíka endurgjöf yfir jól og páska og yfir miðsumar (1.júlí til 5.ágúst).

    Sjálfsnám - getur byrjað strax!
    Námsleiðin er byggð þannig upp að þú átt að geta bjargað þér án hjálpar að komast í gegnum allt námið. Þú velur þennan kost, af því þú ert ekki að leitast eftir diplóma/frammistöðumati og þetta er lang ódýrasta leiðin til að fá allt kennsluefnið.

Námsyfirferð er eftirfarandi:
Mismunandi gerð kynningarefnis - 1 dagur
Adobe Photoshop(myndvinnsla) - 8 dagar
Adobe InDesign(umbort og hönnun) - 7 dagar
Adobe Illustrator(teiknivinnsla) - 7 dagar
Lokaverkefni - 3 dagar
Námið er ítarlegt og góður grunnur til að byggja á. Námslínan veitir ekki starfsheitið "grafískur hönnuður" enda er það lögverndað starfsheiti og það veitir engin bein starfsréttindi.
Nánar um námið:

MISMUNANDI GERÐ KYNNINGAREFNIS (1 DAGUR)
Farið er í yfirferð námskeiðsins og verkferlið rakið frá hugmynd að fullunnu verki. Kynntir eru helstu boðmiðlar og boðleiðir út á markaðinn. Fjallað er um mismunandi kynningarefni fyrirtækja: hver þau eru og hverjar áherslurnar eru við framsetningu þeirra. Rætt er um ímynd fyrirtækja, möguleika á markaði og margt fleira.

ADOBE PHOTOSHOP (6 DAGAR)
Kennt er á Photoshop-myndvinnsluforritið. Hér er áhersla lögð á ljósmyndir, meðferð þeirra og vinnslu í víðu samhengi. Farið er í helstu aðgerðir forritsins sem snúa að vinnslu ljósmynda, upplausn og margt fleira. Nemendur læra að vinna með myndir, blanda þeim, laga og breyta, svo fátt eitt sé nefnt.

ADOBE ILLUSTRATOR (6 DAGAR)
Kennt er á Illustrator-teikniforritið sem er eitt mest notaða teikniforritið í dag. Lögð er áhersla á að nemendur læri að tileinka sér þær aðferðir sem þarf til að koma góðri hugmynd á tölvutækt form. Nemendur vinna raunhæf verkefni, svo sem auglýsingar, merki og fleira.

ADOBE INDESIGN (6 DAGAR)
Kennt er á InDesign-umbrotsforritið. Lögð er áhersla á að nemendur læri að tileinka sér einfaldar og markvissar aðferðir sem þarf til að koma góðri hugmynd á framfæri. Nemendur vinna raunhæf verkefni, svo sem innskot í tímarit og bæklinga.

MEÐHÖNDLUN LITA (1 DAGUR)
Farið er yfir mismunandi litakerfi í myndvinnslunni: RGB, CMYK og fleiri. Einnig er fjallað almennt um litvinnslu.

LETUR OG LETURFRÆÐI (1 DAGUR)
Fjallað er um leturgerðir og leturfjölskyldur og fengist við spurningar eins og: Hvernig á að velja letur? Hvað má og hvað má ekki? Hvaða leturnotkun er vænlegust til árangurs?

SKIPULAG, VISTUN OG FRÁGANGUR (1 DAGUR)
Fjallað er um hvernig er best að skipuleggja verkefni, hvernig á að haga frágangi á verkum til hinna ýmsu miðla, hvernig á að skila af sér verkefnum og hvað er nauðsynlegt að gera og hvað ber að varast.

SAMSKIPTI VIÐ FJÖLMIÐLA OG PRENTSMIÐJUR (1 DAGUR)
Í þessum hluta námskeiðsins eru tvær heimsóknir. Farið er í prentsmiðjuna Prentmet og verkferli hennar og prentmöguleikar skoðaðir. Þá er Morgunblaðið heimsótt, þar sem tæknilegur fulltrúi blaðsins sýnir það sem máli skiptir og ræðir við nemendur um vistun og frágang á myndum til prentunar.

LOKAVERKEFNI (3 DAGAR)
Í lokaverkefninu vinna nemendur kynningarpakka fyrir fyrirtæki og fleira. Verkefnið er kynnt snemma á námskeiðinu, unnið af og til meðan á námskeiðinu stendur og svo eingöngu í síðustu tímunum. Verkefninu er skilað bæði á útprentuðu og tölvutæku formi. Kennarinn gefur umsögn (einkunn) fyrir lokaverkefnið.

ANNAÐ
Margt af ofangreindu skarast að einhverju leyti, þannig að umfjöllunin er lifandi. Að auki er fjallað um heilmargt annað sem snertir grafíska hönnun. Nefna má almenna umræðu um hönnun, merkjahönnun, markaðsmál, prentmöguleika, pappír, pappírsval ofl.
Ganga þarf frá greiðslu áður en námskeið hefst.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:

1. Innlegg í heimabanka NTV: 0545 – 26 – 44. Kt: 681096-2729

2. Fá kröfu í heimabanka einstaklings eða fyrirtækis til að greiða þar. Sendið beiðni á [email protected]

3. VISA eða MasterCard lán (raðgreiðslur) til allt að 36 mánaða

4. Netgíró https://www.netgiro.is/. Hámarksfjárhæð er 1.000.000 kr. til allt að 24 mánaða

5. Pei.is http://pei.is/ Hámarksfjárhæð er 2.000.000 kr. til allt að 48 mánaða

Kynntu þér vel mögulega styrki, reglur um endurgreiðslu ofl hér

SKRÁNING

Grafísk hönnun – Kvöldnám

Hefst: 20. Feb '25
Lýkur: 22. May '25
Þriðjudag og fimmtudag frá kl. 17:15 – 21:00

Verð: 335.000 kr.

Grafísk hönnun – Fjarnám

Hefst: 20. Feb '25
Lýkur: 22. May '25
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 335.000 kr.

Grafísk hönnun – Blandað form stað&fjar

Hefst: 20. Feb '25
Lýkur: 22. May '25
Þú mætir í staðarnám þegar hentar en ert annars í fjarnámi. Mæting í staðarnámið verður að tilkynna leiðbeinanda með 2j daga fyrirvara og er háð því að það sé laust sæti.

Verð: 335.000 kr.

Grafísk hönnun – Dagnám

Hefst: 20. Feb '25
Lýkur: 22. May '25
Þriðjudag og fimmtudag frá kl. 13:00 – 16:45

Verð: 335.000 kr.

Grafísk hönnun – Fjarnám í frelsi

Byrjaðu strax og þú vinnur einn á móti kennara (ekki í hópi) og hefur mun lengri tíma til að sinna náminu eða 180 daga. Að sama skapi getur þú líka unnið mun hraðar en í staðar- og fjarnáminu þar sem þú fylgir hópi og námsdagskrá.

Verð: 422.500 kr.

Grafísk hönnun – Sjálfsnám

Byrjaður strax. Færð aðgengi að öllu kennsluefninu, en þarf ekki samskipti við kennara.

Verð: 243.750 kr.