Forritun I – Vefþróun

Byrjuninn á þróun veflausna

464.500 kr.

Um námið

Í fyrsta hlutanum af Forritun kynnast nemendur grunnatriðum vefþróunar og læra að byggja upp einfaldar, stílhreinar vefsíður samkvæmt viðurkenndum stöðlum. Námið er í takt við nýjustu þróun í hugbúnaðargeiranum og miðar að því að veita færni sem er metin að verðleikum á vinnumarkaði. Áhersla er lögð á traustan grunn í vefþróun og góða vinnusiði sem nýtast í áframhaldandi námi og störfum.
Námið er fyrir þá sem vilja læra grunn vefþróun og eru að taka sín fyrstu skref í forritun. Það hentar jafnt þeim sem vilja þróa persónulegar vefsíður, bæta stafræna sjálfsafgreiðslu á vinnustað eða undirbúa sig fyrir feril í hugbúnaðarþróun. Námið er ekki ætlað reyndum forriturum. Fyrir þá sem eru óvissir um hvort forritun henti sem námsgrein eða starfsvettvangur er mælt með að hefja nám í Grunnnámi í Forritun, eða Smakkinu eins og við köllum það.
Að loknu námi eiga þáttakendur að:
  • Hafa góðan skilning á grunnatriðum vefþróunar.
  • Kunna að setja upp einfaldar og stílhreinar vefsíður.
  • Hafa öðlast traustan grunn í HTML og CSS.
  • Kunna helstu undirstöðuatriði í notkun Git og útgáfustýringar.
  • Vera undirbúnir fyrir áframhaldandi nám í forritun og vefþróun.
Helstu atriði sem verður farið yfir:
  • Uppbyggingu skjala með HTML5.
  • Uppsetningu og snið með CSS3, þ.m.t. Flexbox og Grid.
  • Grunnnotkun á Git og GitHub fyrir útgáfu og samvinnu.
  • Kynningu á React, þar sem nemendur setja upp verkefni, skrifa JSX og búa til einfalda viðmóðaþætti.
  • Yfirlit yfir netkerfi, HTTP-fyrirspurnir og hvernig vafrar túlka DOM.
  • Einföld einingapróf og debugging í vafra.

Lokaverkefni og skilaverkefni gilda sem frammistöðumat.


20% – tímaverkefni
Verkefni sem eru kennd yfir hvern tíma. Farið yfir hugtök.


40% – 3x skilaverkefni
Stærri verkefni sem notað er við það sem er kennt í tímum. Förum yfir.


40% – Lokaverkefni
Ennþá stærra verkefni í nokkrar vikur og er hugsað sem lokapróf.

Kennslan er áætluð um 100 klst., en áætlað námsframleg er nærri 120-180 klst. yfir önnina eða sem nemur um 8-13 klst á viku. En þetta er auðvitað mjög persónubundið.

Meðmæli

Að stúdentsprófi loknu fór ég beint á vinnumarkað þar sem ég hafði ekki fundið námsbraut sem höfðaði til mín. Það var ekki fyrr en ég sá Facebook auglýsingu frá NTV þar sem ég sá tækifæri til að setjast aftur á skólabekk, án þess að skuldbinda mig náminu með þeim hætti að ég þyrfti að segja...

Ósk Björnsdóttir Frontend Engineer hjá Energy Machines í Kaupmannahöfn.

Forritun I – Vefþróun – Fjarnám

Hefst: 23. Sep '26
Lýkur: 21. Jan '27
Farið eftir skipulegri námsáætlunum með skilgreindum skiladögum verkefna og/eða prófa. Frjálst hvenær dagsins, eða hvað daga vikunnar þú vinnur í náminu.

Verð: 464.500 kr.

45.169 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Forritun I – Vefþróun – Kvöldnám

Hefst: 23. Sep '26
Lýkur: 21. Jan '27
Dagar: mánudagur, miðvikudagur – Tími: 18:00-21:00 & verkefnatímar 1-2 laugardaga

Verð: 464.500 kr.

45.169 kr/mán
(m.v. 12 mán)

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði