Ganga þarf frá greiðslu áður en nám hefst. Best er að ganga frá greiðslu við skráningu á heimasíðu.
Við bjóðum upp á eftirfarandi greiðslumöguleika:
IBAN:IS620546260007446810962729
SWIFT: GLITISRE546
Ef greiðsla námskeiðsgjalda er ekki greidd við skráningu er mælst til þess að greitt sé 10% staðfestingargjald. Þeir sem greiða staðfestingargjaldið tryggja sér forgang ef námskeið fyllist. Staðfestingargjaldið er óafturkræft.
Við viljum vekja athygli á að nemandi sem hættir í námi eða námsleið, hefur ekki rétt á endurgreiðslu á námskeiðsgjöldum.
Ef nemandi þarf að hætta við þátttöku áður en nám hefst þarf afskráning að berast til skólans á netfangið [email protected] ekki síðar en 7 dögum áður en nám hefst. Berist afskráning of seint eða ekki látið vita áskilur skólinn sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöldin að fullu.
Námskeiðsgjöld eru ekki endurgreidd. Ef nemandi lendir í veikindum eða missir tök á að sinna námi þá getur viðkomandi sótt um að sækja námið aftur gegn því að greiða aðeins 50% af námsgjöldum innan 18 mánaða. Það er þó alltaf með fyrirvara um að námsleiðin verði haldin aftur og það sé laust pláss. Skólinn áskilur sér allan rétt til að vera ekki skuldbundinn slíku.
Við hvetjum þá sem eru að skrá sig á brautir (þ.e. tveggja eða þriggja anna nám), að íhuga að greiða staka námshluta, þ.e. hverja önn fyrir sig, þó það kosti meira. Á móti er það betri trygging fyrir viðkomandi ef eitthvað kemur uppá og fólk þarf frá að hverfa. Því námskeiðsgjöldin eru ekki endurgreidd.
Flest stéttarfélög styrkja félagsmenn sína til náms hjá NTV Promennt. Réttindi hvers og eins eru mjög mismunandi þannig að best er að tala við sinn sjóð eða nálgast upplýsingar um þína stöðu hjá þínum starfsmenntasjóði/stéttarfélagi inná Mínar síður.
Einnig er gott er að kynna sér vel styrki sem starfsmenntasjóðir/stéttarfélög eru að veita fyrirtækjum/félagsmönnum.
Fyrirtæki greiða iðgjald í starfsmenntasjóði og geta sótt um starfsmenntastyrk fyrir sína starfsmenn. Áttin er samstarfsverkefni nokkurra starfsmenntasjóða og þar geta vinnuveitendur sótt um styrk inni á https://attin.is/fyrirtaekjastyrkir/ – óháð starfsmanni.
Hér neðar eru tenglar á vefsíður þar sem nálgast má upplýsingar um styrki. Athugið að listinn er ekki tæmandi. Hafðu samband við þitt stéttarfélag og kannaðu málið.
Virk starfsendurhæfing hefur verið að styrkja sína skjólstæðinga til náms hjá NTV Promennt. Skjólstæðingur Virk talar við sinn ráðgjafa sem hefur svo samband við okkur.
Öryrkjar og eldri borgarar, sem eru ekki að nýta styrki til námsins, eiga þess kost að fá 7% afslátt af námskeiðum og 5% lengri námsbrautum.
Vinnumálastofnun (VMST) niðurgreiðir fyrir atvinnuleitendur sum námskeið hjá NTV Promennt um allt að 75% af námskeiðsverði samkvæmt nánari reglum VMST, þó að hámarki 80.000 kr. á ári. (sjá nánar hér).
Ef óskað er eftir endurútgáfu eða yfirliti yfir sótt námskeið hjá NTV Promennt er tekið 3.000 kr. umsýslugjald. Vinsamlegast sendið beiðni í tölvupósti á netfangið [email protected]
Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.
Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans. Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.
Sjá nánar: Námsform í boði
Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.
Sjá nánar: Námsform í boði
Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.
Sjá nánar: Námsform í boði
Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.
Sjá nánar: Námsform í boði