Nýi tölvu- og viðskiptaskólinn (NTV) hóf starfsemi sína í október 1996. Stofnendur voru bræðurnir Jón Vignir og Sigurður Karlssynir.
Í byrjun var skólinn að Hólshrauni í Hafnarfirði og síðar einnig í Hlíðasmára í Kópavogi. Um mitt ár 2003 var ákvörðun tekin um að færa starfsemi skólans undir eitt þak í Hlíðasmárann og stækka skólann þar um 4 kennslustofur.
Haustið 2024 sameinuðust NTV skólinn og Promennt ehf. og heitir skólinn í dag NTV Promennt. Með þessari sameiningu jókst framboð á starfsmiðuðu námi, endurmenntun og fræðslulausnum fyrir fyrirtæki ásamt því að samþættar voru námsleiðir sem höfðu verið í boði hjá sitthvorum skólanum. Námsleiðirnar sem í boði eru í dag spanna allt frá hönnun til tækni yfir í bókhald, rekstur, stjórnun og sérfræðinám.
NTV Promennt starfar eftir EQM gæðastaðli og er viðurkenndur fræðsluaðili af Menntamálastofnun í samstarfi við flesta fræðslu- og símenntunaraðila á Íslandi í fullorðinsfræðslu.
NTV Promennt hefur ætíð haft það orðspor að vera vinalegur og heimilislegur skóli. Nemendur hafa oft orð á að þeim líði vel í skólanum. Við vitum að flestir okkar nýnemendur koma vegna góðs umtals fyrrverandi nemenda. Í reglulegu kennslumati segjast yfir 90% nemenda mæla með skólanum við þriðja aðila. Við erum meðvituð um þetta og er skólanum mjög mikilvægt að viðhalda því þægilega og persónulega viðmóti sem skólinn er þekktur fyrir.
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 8.30 – 16.00, nema föstudaga frá kl. 8.30 – 13.00. Utan opnunartíma er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið [email protected].
Kennitala skólans: 681096-2729
Reikningsnúmer: 0545-26-000044
Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.
Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans. Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.
Sjá nánar: Námsform í boði
Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.
Sjá nánar: Námsform í boði
Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.
Sjá nánar: Námsform í boði
Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.
Sjá nánar: Námsform í boði