Pivot töflur í Excel

Ítarlegt og hagnýtt

29.500 kr.

Leiðbeinendur

Um námið

Námskeiðið Pivot töflur er umfangsmikið og hagnýtt námskeið. Þetta námskeið er hannað til að veita nemendum alhliða skilning og þekkingu á Microsoft Excel Pivot töflum, einu öflugasta gagnagreiningartæki sem til er í Excel. Með námskeiðinu muntu læra að vinna með gögn á skilvirkan máta og umbreyta notkun þinni í excel. Kennslan fer fram í pivot umhverfinu þar sem kennt verður allt frá því hvernig við lesum gögn inn í pivot töflur og yfir í hvernig búin eru til dínamísk mælaborð.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa grunnfærni í Excel og vilja vinna með meðalstór eða stór gagnasett. Pivot töflur eru sem dæmi mikið notaðar af fólki sem er að vinna með rekstrar- og fjárhagsupplýsingar.
Að þátttakendur læri frá grunni að búa til sínar eigin gagnatöflur í Pivot og vinna með þau á skilvirkan hátt.

Pivot töflur í Excel

Heildarlengd: 2 klst. 7 mín.
Kynning 1 mín.
  • 000 Kynningarmyndband 01:27
1. hluti: Grunnatriði Pivot töflu 28 mín.
  • 1.0 Kynning á gagnasetti 04:01
  • 1.1 Hvernig búum við til Pivot töflu 04:58
  • 1.2 Öll boxin 04:18
  • 1.3 Flýtiskipan Alalyze 13:02
2. hluti: Snið og útlit 27 mín.
  • 2.1 Talnasnið 02:59
  • 2.2 Litir 01:15
  • 2.2.1 Útlit og sniðmát 05:38
  • 2.3 Field list 02:05
  • 2.4 Skilyrt snið 15:19
3. hluti: Flokkun og síun 29 mín.
  • 3.1 Töfluflokkun 09:26
  • 3.2 Filter 02:09
  • 3.3 Sérhæfð flokkun 1 03:09
  • 3.4 Sérhæfð flokkun 2 03:53
  • 3.5 Slicers og tímalína 05:24
  • 3.6 Slæser stillingar 02:47
  • 3.7 Samtenging slæsera 03:17
4. hluti: Úrreikningar og gildi 15 mín.
  • 4.1 Samlagning talna 02:04
  • 4.2 Sýna gildi sem 05:47
  • 4.3 Calculate fields 03:54
  • 4.4 Calculate items 03:13
5. hluti: Myndrit og mælaborð 27 mín.
  • 5.0 Myndrit 14:14
  • 6.0 Mælaborð 12:51
Engin verkefnaskil eða próf og því ekkert frammistöðumat. Eina staðfesting um þátttöku er greiðslustaðfesting.
Ekkert mat er á vinnuframlag enda eðli námsleiðar slík og undir hverjum og einum komið. Þú getur unnið með námsefnið í 6 mánuði frá því þú skráir þig. Hægt að kaupa framlengingu ef þú óskar.

Pivot töflur í Excel – Sjálfsnám

Verð: 29.500 kr.

Námsform í boði

Námsbrautir skólans samanstanda af nokkrum námsleiðum og eru skipulagðar í hluta, frá grunnnámi upp í sérhæfðari þekkingu. Lengd námsbrauta er mismunandi, en yfirleitt á bilinu 12–16 mánuðir. Námsbrautir henta bæði þeim sem vilja hefja nám á nýju sviði og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína, þróa faglega hæfni eða undirbúa sig fyrir tækifæri á vinnumarkaði. Að loknu námi fá nemendur diplómu sem staðfestir þá færni og þekkingu sem þeir hafa öðlast. Einnig er hægt að skrá sig í styttri námsleiðir innan námsbrautarinnar.

Staðnám er kennt í fullbúinni kennslu-/tölvustofu innan skólans.  Ef viðkomandi námslína er einnig í boði í fjarnámi, þá hafa staðarnemendur aðgengi að fjarnámsefninu, sem er ekki síður mikilvægt ef þú missir úr kennsludag.

Sjá nánar: Námsform í boði

Tímarammi er afmarkaður (upphaf og endir). Nemandi hefur frelsi innan dagsins og hvaða daga vikunnar hann sinnir náminu. Það eru skilgreindir skiladagar skv. námsáætlun(prófdagar ef við á). Nemandi er hluti af hópi.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Nemandi fær meiri tíma til að stunda námið, 6 mánuði, eða styttri tíma ef það hentar. Fjarnám í frelsi, er hugsað fyrir þá sem geta unnið sjálfstætt og þurfa ekki daglega aðstoð.

Sjá nánar: Námsform í boði

Skráðu þig, greiddu og byrjaðu námið. Í sjálfsnámi ert þú námsmaður á eigin vegum án aðstoðar kennara. Ekki er veitt viðurkenning í lok náms.

Sjá nánar: Námsform í boði