Staða
Ekki hafið
Verð
Closed
Hefja nám

Kæri þátttakandi í Grunnnámi í bókhaldi í frelsi.

Fjarnám í FRELSI gerir þér kleift að sinna náminu á styttri tíma eða lengri tíma eins og þér hentar. Þú hefur 180 daga til að klára námið, sem er tvöfalt lengri tími en í hefðbundnu fjarnámi.

Frelsið felst í því að þú hefur val hvenær þú lærir, hvenær þú skilar verkefnum og hvenær þú tekur próf.

Mikilvægt er að þú klárir námið í réttri röð og farir vel í gegnum allt kynningarefni áður en þú byrjar. Rétt röð námslota er 1. verslunarreikningur, 2. Excel grunnur, 3. bókhald og 4. tölvubókhald. Náminu fylgja ýmis skjöl og skráarsnið sem þú hleður niður í tölvuna þína og vinnur með.  Jafnframt fylgja kennslubækur sem þú getur lesið í gegnum vafra.  Allt kennsluefni í náminu sem þú hefur aðgengi að er eign NTV skólans og er með öllu óheimilt að dreifa.

Náminu er skipt upp í fjóra hluta og er mælst til að þú klárir hvern hluta, áður en þú byrjar á þeim næsta.  Eftir að þú hefur klárað hvern námshluta átt þú rétt á að taka rafrænt próf í gegnum nemendaumhverfi skólans.  Mikilvægt er að panta próftíma með allt að viku fyrirvara.  Prófdagarnir eru á miðvikudögum kl. 9:00 og kl. 13:00.  Hægt er að fá að taka upptökupróf gegn prófagjaldi.

Frammistöðumat (Diplóma) er eingöngu veitt þeim sem taka próf og með þeim hætti sýna fram á færni.

Grunnnám í bókhaldi er fyrsta önnin á bókhaldsbraut skólans og fyrir þá sem vilja halda áfram þá þarf að ná 7,0 í meðaleinkunn.